vinnubók: gs Reykjavík Menningarborg 2000  nb  kh  ath  25.09.03

B R A G I

frumstig   menning: skrifa

Listamenn: Jóhannes Kjarval

1885 Jóhannes Sveinsson fæddur 15. október í Borgarfirði. Faðir hans var Sveinn Ingimundarson og móðir Karítas Sverrisen.
1890 Tekinn í fóstur til ættingja.
1900 Fer að stunda sjómennsku á sumrin.
1901 Flytur til Reykjavíkur; byrjar í skóla. Kynnist myndlist Þórarins B. Þorlákssonar og Ásgríms Jónssonar; stundar nám hjá Ásgrími um tíma.
1908 Fyrsta sýning á verkum Jóhannesar í Reykjavík.
1911-1912 Dvelur í Lundúnum; sækir um í Konunglegu ensku akademíunni, en er hafnað; málar heima hjá sér; skoðar lista- og minjasöfn. Tekur sér nafnið Kjarval.
1912 Flytur til Kaupmannahafnar; heldur sýningu og fær góða dóma.
1912-1914 Lærir teikningu í tækniskóla í Kaupmannahöfn; málar leiktjöld fyrir "Fjalla-Eyvind" hjá Dramaten-leikhúsinu í Stokkhólmi.
1914-1918 Stundar nám við Konunglegu dönsku akademíuna.
1915 Giftist Tove Merild.
1919-1920 Ferðast um Danmörku, Noreg og Svíþjóð, dvelur á Ítalíu, í Rómaborg, Flórens og Napólí.
1921-1922 Býr með fjölskyldu sinni í Kaupmannahöfn.
1922 Flytur til Íslands; vinir hans stofna félag til að styðja hann fjárhagslega.
1924 Kjarval er fenginn til að mála stóra veggmynd í Landsbanka Íslands, Reykjavík.
1925 Stofnar myndlistarblað en aðeins eitt tölublað kemur út; skilur við konuna sína.
1928 Dvelur í París.
1931-1947 Sýningar í Kaupmannahöfn og Reykjavík.
1945 Nokkrir þingmenn leggja til að byggt verði hús og vinnustofa handa Kjarval.
1955 Stór sýning á 70 ára afmæli hans.
1957 Kjarval gefur Listasafni Íslands stórfé til að kaupa íslensk málverk fyrir safnið; Alþingi veitir fé til að byggja húsnæði og vinnustofu handa Kjarval.
1965 Byrjað á að byggja húsnæði fyrir Kjarval 20 árum eftir að tillagan er fyrst flutt á Alþingi.
1966 Byrjað á að byggja Kjarvalsstaði, listasafn Reykjavíkur, sem á að tileinka Kjarval.
1972 Kjarval andast í Reykjavík; Kjarvalsstaðir opnaðir síðar á sama ári.

 

Verkefni

Hvað hét hann, hvenær fæddist hann og hvenær dó hann?  

 

Hvar ólst Kjarval upp?  

 

Hvar lærði Kjarval myndlist?  

 

 

Hvert hefur hann ferðast?  

 

 

 

 

[FORSÍÐA] [yfirlitstafla]

[athugasemdir, 25.09.03]