Grýla kemur á hverjum vetri, hún er í loðnu skinnstakks tetri, sú er ekki sagan betri, sinn í belg hún fá vill jóð, Valka litla vertu góð, Valka litla vertu góð, vendu þig af að ýla. Senn kemur að sækja þig hún Grýla Gamall húsgangur
Grýla kallar á börnin sín þegar hún fer að sjóða til jóla: "Komið hingað öll til mín, ykkur vil ég bjóða, Leppur, Skreppur, Lápur, Skrápur, Langleggur og Skjóða Völustekkur og Bjóla. Gamall húsgangur
Grýla á sér lítinn bát, rær hún fyrir sandi. Þegar hún heyrir barnagrát flýtir hún sér að landi. Gamall húsgangur
Grýla píla appelsína missti skóinn ofan í sjóinn. Þegar hún kom að landi var hann fullur af sandi. Barnarím um Grýlu frá lokum 20. aldar.
Öll ljóðin birt í Barnanna hátíð
blíð. Sögur, söngvar og fróðleikur um jólin |
[FORSÍÐA] [yfirlitstafla]
[athugasemdir, 14.12.01]