námsbók: GS  vb  kh  ath  25.09.03

forn
B R A G I

frumstig   Íslendingasögur: Borg

Egils saga: „Hvorki kom aftur síðan þrælarnir né kisturnar.“

88.

Það var á dögum Hákonar hins ríka öndverðum, þá var Egill Skalla-Grímsson á níunda tugi, og var hann þá hress maður fyrir annars sakar en sjónleysis.

Það var um sumarið, er menn bjuggust til þings, þá beiddi Egill Grím að ríða til þings með honum; Grímur tók því seinlega.

Og er þau Grímur og Þórdís töluðust við, þá sagði Grímur henni, hvers Egill hafði beitt; "vil eg, að þú forvitnist, hvað undir mun búa bæn þessi."

Þórdís gekk til máls við Egil, frænda sinn; var þá mest gaman Egils að ræða við hana; og er hún hitti hann, þá spurði hún: "Er það satt, frændi, er þú vilt til þings ríða? Vildi eg, að þú segðir mér, hvað væri í ráðagerð þinni."

"Eg skal segja þér," kvað hann, "hvað eg hefi hugsað. Eg ætla að hafa til þings með mér kistur þær tvær, er Aðalsteinn konungur gaf mér, er hvortveggja er full af ensku silfri. Ætla eg að láta bera kisturnar til Lögbergs, þá er þar er fjölmennast; síðan ætla eg að sá silfrinu, og þykir mér undarlegt, ef allir skipta vel sín í milli; ætla eg, að þar myndi vera þá hrundningar, eða pústrar, eða bærist að um síðir, að allur þingheimurinn berðist."

Þórdís segir: "Þetta þykir mér þjóðráð, og mun uppi, meðan landið er byggt."

Síðan gekk Þórdís til tals við Grím og sagði honum ráðagerð Egils.

"Það skal aldri verða, að hann komi þessu fram, svo miklum firnum."

Og er Egill kom á ræður við Grím um þingferðina, þá taldi Grímur það allt af, og sat Egill heima um þingið; eigi líkaði honum það vel; var hann heldur ófrýnn.

Að Mosfelli var höfð selför, og var Þórdís í seli um þingið.

Það var eitt kveld, þá er menn bjuggust til rekkna að Mosfelli, að Egill kallaði til sín þræla tvo, er Grímur átti; hann bað þá taka sér hest -- "vil eg fara til laugar."

Og er Egill var búinn, gekk hann út og hafði með sér silfurkistur sínar; hann steig á hest, fór síðan ofan eftir túninu fyrir brekku þá, er þar verður, er menn sáu síðast.

En um morguninn, er menn risu upp, þá sáu þeir, að Egill hvarflaði á holtinu fyrir austan garð og leiddi eftir sér hestinn; fara þeir þá til hans og fluttu hann heim.

En hvorki kom aftur síðan þrælarnir né kisturnar, og eru þar margar gátur á, hvar Egill hafi fólgið fé sitt. Fyrir austan garð að Mosfelli gengur gil ofan úr fjalli; en það hefir orðið þar til merkja, að í bráðaþeyjum er þar vatnfall mikið, en eftir það er vötnin hafa fram fallið, hafa fundist í gilinu enskir peningar; geta sumir menn þess, að Egill muni þar féð hafa fólgið. Fyrir neðan tún að Mosfelli eru fen stór og furðulega djúp; hafa það margir fyrir satt, að Egill muni þar hafa kastað í fé sínu. Fyrir sunnan ána eru laugar og þar skammt frá jarðholur stórar, og geta þess sumir, að Egill mundi þar hafa fólgið fé sitt, því að þangað er oftlega sénn haugaeldur. Egill sagði, að hann hefði drepið þræla Gríms, og svo það, að hann hafði fé sitt fólgið, en það sagði hann engum manni, hvar hann hefði fólgið.

Egill tók sótt eftir um haustið, þá er hann leiddi til bana. En er hann var andaður, þá lét Grímur færa Egil í klæði góð; síðan lét hann flytja hann ofan í Tjaldanes og gera þar haug, og var Egill þar í lagður og vopn hans og klæði.

[Netútgáfa: Saga]

    

[FORSÍÐA] [fornBRAGI]

[athugasemdir, 25.09.03]