Árið 1898 kom til landsins franskur barón, Charles Gouldrée Boilleau að nafni. 1899 lét hann reisa fjós fyrir 50 kýr ásamt hlöðu í Reykjavík og er það fyrsta steinsteypuhúsið í borginni. Fjósið var reist á horni Hverfisgötu og Barónsstígs. Götuheitið Barónsstígur er kennt við baróninn. Núna er fjósið stórmarkaður. Mynd: Ljósmyndasafn Reykjavíkur |
Boilleau barón Okkur var boðið í heimsókn til barónsins á Hvítárvöllum. Baróninn var af franskri aðalsætt, gáfaður maður og stórvel menntaður, tungumálamaður mikill og lærði íslensku á ótrúlega stuttum tíma. Mörgum þótti furðulegt, að hann skyldi setjast hér að og gerast bóndi uppi á Íslandi. (Úr ævisögu Valgerðar Benediktsson 1942, 24-25.) |
Styttur og aðlagaður texti úr: Reykjavík Sögustaður við Sund. 1.bindi,
bls. 80.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. 1986.
Merkið við staðhæfingarnar | satt | ósatt | veit ekki |
Baróninn var mikill tungumálamaður | |||
Hann var bóndi í Reykjavík | |||
[FORSÍÐA] [yfirlitstafla]
[athugasemdir, 19.04.02]