kennarahandbók: GS  nb  vb  ath  25.09.03

forn
B R A G I

frumstig   Íslendingasögur: Helgafell

Laxdæla saga: „Þeim var eg verst er eg unni mest.“

meta kennsluefnið

Tilgangur (efni, aðalatriði, markmið)
  •  
Fyrirfram þekking nemenda
  •  
Undirbúningur kennara
  •  
Tillögur
  •  
Aðrir möguleikar
  •  
Ítarefni
  •  
Annað sem má taka fram
  •  

 

Vinnubók
  •  

 

Samsetning hópsins

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tungumál hópsins

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stærð hópsins

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tími

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvernig gekk

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Dagsetning

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Samsetning hópsins: gs 1/2 (grunnstig), fs 3/4 (framhaldsstig)   —  Tungumál hópsins: en(ska), fr(anska), sp(ænska), sk(andínavíska), þý(ska), as(íumál), an(nnað)  —  Stærð hópsins: <6 (1-5), >6 (6-10), >10 (11-20), >20   —  Tími: 45/90/... min.  —   Hvernig gekk: ++ (mjög vel), + (vel), sæmilega (-), illa (--)

Meta síðuna

Lausn/svör


 

78. (Íslenzk fornrit 5, bls. 228-229)

Frá því er sagt eitthvert sinn, at Bolli kom til Helgafells, því at Guðrúnu þótti ávallt gott, er hann kom at finna hana. Bolli sat hjá móður sinni löngum, og varð þeim mart talat.

Þá mælti Bolli: "Muntu segja mér þat, móðir, at mér er forvitni á at vita? Hverjum hefir þú manni mest unnt?"

Guðrún svarar: "Þorkell var maðr ríkastr og höfðingi mestr, en engi var maðr gørviligri en Bolli og albetr at sér. Þórðr Ingunnarson var maðr þeira vitrastr og lagamaðr mestr. Þorvalds get ek at engu."

Þá segir Bolli: "Skil ek þetta görla, hvat þú segir mér frá því, hversu hverjum var farit bœnda þinna, en hitt verðr enn ekki sagt, hverjum þú unnir mest; þarftu nú ekki að leyna því lengr."

Guðrún svarar: "Fast skorar þú þetta, sonr minn," segir Guðrún, "en ef ek skal þat nökkurum segja, þá mun ek þik helzt velja til þess."

Bolli bað hana svá gera.

Þá mælti Guðrún: "Þeim var ek verst, er ek unni mest."

"Þat hyggju vér," svarar Bolli, "at nú sé sagt alleinarðliga," – ok kvað hana vel hafa gört, er hon sagði þetta, er hann forvitnaði.

Guðrún varð gömul kona, ok er þat sögn manna, at hon yrði sjónlaus. Guðrún andaðisk at Helgafelli, ok þar hvílir hon.

78. (Netútgáfan: Gunnlaugs saga)

Frá því er sagt eitthvert sinn að Bolli kom til Helgafells því að Guðrúnu þótti ávallt gott er hann kom að finna hana. Bolli sat hjá móður sinni löngum og varð þeim margt talað.

Þá mælti Bolli: "Muntu segja mér það móðir að mér er forvitni á að vita? Hverjum hefir þú manni mest unnt?"

Guðrún svarar: "Þorkell var maður ríkastur og höfðingi mestur en engi var maður gervilegri en Bolli og albetur að sér. Þórður Ingunnarson var maður þeirra vitrastur og lagamaður mestur. Þorvalds get eg að engu."

Þá segir Bolli: "Skil eg þetta gerla hvað þú segir mér frá því hversu hverjum var farið bænda þinna en hitt verður enn ekki sagt hverjum þú unnir mest. Þarftu nú ekki að leyna því lengur."

Guðrún svarar: "Fast skorar þú þetta sonur minn," segir Guðrún, "en ef eg skal það nokkurum segja þá mun eg þig helst velja til þess."

Bolli bað hana svo gera.

Þá mælti Guðrún: "Þeim var eg verst er eg unni mest."

"Það hyggjum vér," svarar Bolli, "að nú sé sagt alleinarðlega" og kvað hana vel hafa gert er hún sagði þetta er hann forvitnaði.

Guðrún varð gömul kona og er það sögn manna að hún yrði sjónlaus. Guðrún andaðist að Helgafelli og þar hvílir hún.

 

[FORSÍÐA] [fornBRAGI]

[athugasemdir, 25.09.03]